Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, nóvember 26, 2003

vá maður, rosalegt! í gær um hálfsexleytið sat ég hér við tölvuna og var að chatta í rólegheitunum þegar það heyrast sírenur og læti hérna fyrir utan. ég leit útum gluggann og mér til mikillar furðu var múgur og margmenni hérna á bílaplaninu með fána og gjallarhorn og lúðra. ég hafði ekki hugmynd um tilgang þessarar skrúðgöngu eða öllu heldur skrúðstöðu af því að fólkið færði sig ekkert. ég beið aðeins og kíkti svo aftur útum gluggann og sá þá hvar húfuklædd manneskja var að hrúga blaðastrimlum í garðinn og hljóp svo á brott. mér leist nú heldur betur ekki á blikuna og hringdi í hann tomma minn. hann kom af fjöllum. ég hitti því fyrir nágranna mína úti á gangi og þeir tjáðu mér að þarna væru í gangi mótmæli og ég spurði af hverju þetta hús hefði orðið fyrir valinu...ég komst þá að því að borgarstjórinn í verdun (sem er nafnið á hverfinu mínu í montreal) býr í sama húsi og ég!
það var líka búið að fylla anddyrið af blaðastrimlum og drasli og óeirðalögreglan mætti á svæðið. þegar ég fór út úr húsinu á leið í skólann stóð óeirðalögreglan fyrir utan dyrnar hjá mér og annars konar lögreglur við útganginn og þegar ég kom útúr húsinu stóð fólkið u.þ.b 20 metra frá húsinu í einni þvögu með fánana og lúðrana og hrópuðu og kölluðu þegar ég labbaði áleiðis til þeirra...þetta var alveg eins og í bíómynd. ég reyndi svo að spyrja fólkið hverju það væri að mótmæla en skildi ekki alveg svörin. ég spurði þá hvort ég þyrfti nokkuð að vera hrædd um íbúðina sem ég byggi í og hvort þetta yrðu ofbeldisfull mótmæli...fólkið sagði að þetta yrði allt í lagi, þau væru friðsæl í mótmælum sínum. þegar ég svo kom heim aftur voru allir farnir og byrjað að þrífa draslið úr anddyrinu og garðinum og sagði húsvörðurinn mér að það hefðu einhverjir asnar farið upp á efstu hæðina þar sem borgarstjórinn býr og hellt svínahlandi á teppið í ganginum. jahérna!

ég komst svo seinna að því að fólkið var að mótmæla sameiningu hverfanna innan montreal í eitt og þeim niðurskurði á starfsmönnum sem varð til fyrir bragðið.