Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, nóvember 16, 2003

tomminn er kominn heim. jess fyrir því!

við fórum á bíó í gær. sáum "love actually". hún var bara mjög skemmtileg. fólk klappaði meira að segja þegar hún var búin og samt var byrjað að sýna hana fyrir tveimur vikum. fólk kemst bara í svo gott skap eftir að hafa séð myndina að það ræður ekki við sig. :-)
áður en við sáum myndina fórum við á "eggspectations" sem er svona morgun- og hádegisverðarstaður. flestir réttirnir innihalda egg og þaðan kemur þetta hnyttna nafn. hehe...

síðasta föstudag var "krítík" í hópnum mínum í listaskólanum mínum. það virkar þannig að allir sem hafa sama leiðbeinanda mæta niðrí skóla með öll verkin sín og það sem verið er að vinna í og sýna hinum í hópnum og leiðbeinandanum og þá er það gagnrýnt. ég mætti með þrjú málverk og nokkrar teikningar. gat ekki farið með skúlptúrana mína tvo af því að annar er blautur og hinn er líklega í brennslu núna. krítíkin gekk bara ágætlega. fólki fannst ég bara hafa tekið framförum frá því ég byrjaði og þá er ég bara nokkuð ánægð enda tilganginum náð! :-)

í komandi viku verða þrjú frönskupróf, lokaprófin á þessari önn. ætlunin er því að læra eitthvað í dag og á morgun og taka þessi próf í nefið.