Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, nóvember 07, 2003

röddin í mér er alveg búin. ástæðan er sú að ég fór í morgun heim til hins söngvarans í hljómsveitinni minni og tók upp raddir fyrir tölvuleik sem verður gefinn út í desember. ég öskraði úr mér lungun gjörsamlega. enda er þetta með eindæmum ofbeldisfullur leikur. hinn söngvarinn var nefnilega að vinna í fyrirtæki sem gerði þetta og hann hefur ennþá sambönd innan geirans og tekur að sér verkefni til að eiga ofan í sig og á. ég eyddi sumsé morgninum í að gefa frá mér hljóð eins og verið væri að drepa mig og berja sundur og saman. hehehe. gamanaðessu!

tommi er á leiðinni til íslands. hann verður þar í viku. svosem bara ágætt að vera nokkra daga í sundur svona öðru hverju. þá er alltaf svo gaman að hittast aftur. :-)