Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, nóvember 13, 2003

jæja. nú er ég öll að hressast!
í gærkvöldi spilaði hljómsveitin mín á pöbb sem heitir pub st. paul og er í gamla bænum. þetta var eins konar "battle of the bands" en við ákváðum bara að vera með fyrir tveimur dögum síðan og seldum ekki fjörtíu miða eins og þarf til að taka þátt heldur þekkti einhver einhvern og við fengum að svindla okkur með. giggið gekk svona líka glimrandi vel að fólk ætlaði bara ekki að hleypa okkur niður af sviðinu. þegar við vorum búin komu margir og þökkuðu okkur fyrir og einn sagði við mig svo eftirminnilega "girl, you've got soul"...hehehe. annar hélt að ég væri ítölsk? og þriðji sagði "you lifted me up" !?!? sem ég veit ekki alveg hvað þýðir enda líklega þýtt úr frönsku yfir á ensku.
þetta var þrusustuð og bandið lék á alls oddi með skemmtileg múv og svona...jess!

smá mont.

tommi kemur aftur á morgun. húrra fyrir því! mér finnst vika alveg nógu langur tími í sundur. þó það sé fljótt að líða.

í gærkvöldi var þrumuveður og ég gekk ein heim frá lestarstöðinni í rigningu og myrkri. ekkert sérlega sniðugt eiginlega. ekki segja mömmu!