Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, október 12, 2003

tommi kom með tvær snilldarhugmyndir í morgun þegar hann vaknaði. þegar ég spurði hann hvort hann ætlaði ekki að rúlla sér yfir til mín þá sagði hann: "nei, ég er í leiðréttingarstöðu". því næst sagði hann: "veistu hvernig maður getur séð fram í tímann? ... þú tekur vídeókameru og setur á record og svo spólarðu bara áfram í mynd". þetta er náttúrulega snilld! hversu oft hefur maður vaknað skakkur og þurft að fara í leiðréttingarstöðu? og hvað annað getur gerst þegar maður er að spóla áfram í mynd á tómri spólu en að maður sjái fram í tímann??? ég skora á lesendur að tileinka sér hugtakið "leiðréttingarstaða" og prófa að spóla áfram og sjá hvað gerist...

ég lenti í svakalega fyndnu atviki á fimmtudagskvöldið þegar ég var að koma heim með metróinu. eftir að hafa setið í lestinni og velt fyrir mér myndinni sem ég var að mála í tíma vippaði ég mér útúr lestinni og labbaði í átt að útgangnum. þá gengur til mín strákur eins og hann sé að leita að einhverju og byrjar að tala á frönsku...ég næ ekki alveg því sem hann segir og bið hann að útskýra á ensku. ég bjóst náttúrulega við að þarna væri villtur ungur maður að spyrja vegar. þá byrjar hann: "excuse me, ehh...sorry...ehhh... this might sound very direct...ehhh... but i couldn't but notice you on the train and i think you are very cute...ehh...and..." ég byrjaði að flissa og átti bágt með að skella bara ekki upp úr. ég leit á hann vandræðalega og sagðist vera gift og þá kom á hann voðalegur svekkelsissvipur og hann sagði við mig hissa: "no, you can't be married, how can you be married...you're too young..." mér varð þá ljóst að þessi strákur hlyti að vera mun yngri en ég og þegar ég hugsa um það hlýtur hann að hafa verið um tvítugt. þarna var því ekki kominn villtur ungur maður að spyrja vegar heldur villtur ungur maður að leita að konu.
þetta var alveg svakalega fyndið...guess you had to be there... hann var svo svakalega vandræðalegur eitthvað og ég átti svo bágt með mig að ég hló upphátt alla leiðina heim. jahérna!

hér er ennþá blíðviðri... verður líklega um 20° í dag og sól. eftir það fer að kólna og hlýnar líklega ekki fyrr en eftir áramót einhvern tímann. brrr...