svakalega líður tíminn hratt! kominn föstudagur og ég var bara rétt að byrja vikuna fannst mér.
ég fór sem sagt í málunartíma í gær og málaði í fyrsta skipti á ævinni með akrýllitum. það var pínuskerí í byrjun og ég var hálfhrædd bara við þennan hvíta striga. ég náttúrulega kann ekkert að blanda liti og átti í fullu fangi með að ná sama appelsínugula lit og appelsínan var í körfunni sem við áttum að mála. þetta gekk samt alveg skítsæmilega fannst mér og striginn var farinn að líta út eitthvað í áttina að viðfangsefninu. kennarinn er frábær. maður á fertugsaldri hugsa ég og hrikalega hress í þokkabót.
þetta var alveg stórskemmtilegt og mér fannst ég vera þarna í svona hálftíma á meðan það liðu heilar þrjár klukkustundir.
ég fór á lostræng á miðvikudagskvöldið. það gekk bara fínt. reyndar mætti hljómborðsleikarinn ekki og það heyrðist alveg en ég er alltaf að verða vanari og vanari. það verður svo maraþonæfing um helgina og við ætlum að reyna að æfa upp prógrammið almennilega.
nágranninn fyrir ofan mig er eitthvað að öskra úti á svölum. eitthvað að rugla á frönsku, quebecfrönsku. ég skil ekkert hvað hann er að segja. mér heyrist hann samt vera eitthvað fúll. kannski er þarna eins manns bylting að eiga sér stað. maður veit aldrei.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home