Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, september 01, 2003

lítið að gerast hjá mér svosem. fór í heimastúdíó á föstudaginn og var allan daginn við upptökur á lagi sem hljómborðsleikarinn í hljómsveitinni minni samdi...mér fannst ég hljóma alveg ömurlega en þeir segja mér að þetta verði betra þegar búið er að mixa allt og svona. við ætlum að taka upp fleiri lög, vona bara að það eigi eftir að hljóma betur. maður er bara næstum á bömmer yfir þessu. óvell...sjáum til.

við fórum á bjarkar tónleika síðasta fimmtudag. þeir voru alveg frábærir. rosaleg flugeldasýning og læti enda voru þetta útitónleikar og veðrið var frábært og stjörnubjart og miiiiiiiiiiiiiiiiiiiikið reykt af jónum þarna. maður var bara orðinn hálfskakkur þarna eftir að standa í þvögunni og anda að sér reyknum. púff!

svo var partý á laugardagskvöldið hjá trommaranum hans tomma. hann býr í ótrúlegu húsnæði. einhvers konar skúr sem er eins nálægt lestarteinunum og hægt að vera. ef hurðin er opin sér maður lestina keyra framhjá og íbúðin lýsist upp af ljósinu frá henni. inni í íbúðinni eru hillur úr rekavið eða álíka og iðnaðarvifta. hann sagði okkur líka frá því að þegar hann er að elda á rafmagnshellunni sinni og rista brauð í einu þá verður hann að slökkva á lampanum í eldhúsinu til að það slái ekki út. ofurtæknilegt allt saman.

það er löng helgi, labour day í dag og frí hjá öllum. víhí. við erum bara svo löt eitthvað, gerum ekkert merkilegt. ætlum jú að fara eitthvað út, kannski í bíó eða eitthvað álíka.

hjólið mitt virkar alveg þrusuvel. algjör snilld að eiga hjól.