jæja. mánudagur á enda og þriðjudagur hafinn. tíminn líður eitthvað svo hratt að ég bara hélt að ég væri duglegri að skrifa en er greinilega bara algjör lúði í þeim málum. god damn!
reyndar fór síðan niður í einhvern tíma vegna rafmagnsleysis. það nefnilega kviknaði í húsi hér rétthjá um helgina og þá fór rafmagnið. það vildi þannig til að húsið er beint á móti slökkviliðsstöðinni svo það hefur örugglega ekki liðið langur tími frá því eldur kviknaði þar til bílarnir voru mættir. hehe...
annars er ég búin að vera með hausverk og slappleika og ekki nennt bara að setjast fyrir framan tölvuna. en nú er tíðin betri og hausverkurinn svo gott sem farinn. jess!
foreldrar hans tomma mæta í heimsókn á fimmtudagskvöldið og verða viku. það verður gaman. alltaf gaman að fá gesti. nú er bara að plana hvað á að gera á meðan þau verða hérna. kannski farið verði til quebec city aftur og skoðað betur.
ég er svo alltaf að bíða eftir því að geta skrifað á síðuna mína að við séum búin að kaupa bíl en það er bara búið að vera vesen að fá bílinn og ganga frá öllu að ég hef ekki viljað jinxa það með því að hrópa húrra of snemma. tilkynningin mun birtast á síðunni von bráðar.
ég þarf líka að setja inn myndir sem við tókum á einnotavél hérna í síðustu viku. ég bað um geisladisk með myndunum frá framkölluninni en geisladiskurinn var eitthvað gallaður og myndirnar eru ekki allar heilar. bömmer. ég á þær þó á prenti allar. sem er gott.
veðrið er búið að vera svakalega fínt undanfarið. rúmar tuttugu gráður yfirleitt og sól. mun ferskara en er yfir hásumarið hérna. sem er líka gott.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home