í gær fórum við í hjólatúr niðrí gamla bæinn hérna og skoðuðum mosaiculture sýningu. ótrúlegt hvað hægt er að gera með blómum og gróðri...alveg hrikalega flott sýning. það var líka troðið af fólki þarna enda frídagur og gott veður. við gleymdum myndavélinni en keyptum eina einnota og tókum myndir á hana. ég ætla að tékka hvort ekki sé hægt að fá geisladisk með framkölluninni og hvað það kostar líka.
jæja, ég þarf að fara að æfa lög fyrir morgundaginn. verð að mæta vel æfð á æfingu...kominn tími á það hjá mér!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home