Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, september 18, 2003

ég náði ekki að fá myndirnar hjá pabba hans tomma og því verður einhver bið á því að hér birtist myndir, lesendum síðunnar til mikillar armæðu án efa. hins vegar tókum við tommi örfáar myndir. ég og churchill ábyggilega að hugsa það sama...ekki neitt...hhehehe. er þetta alvöru karl?.

þessa indíána heimsóttum við. það var svakalega áhugavert. það er einhvern veginn mjög sjaldan minnst á þetta fólk þegar talað er um sögu norður-ameríku. asnalegt.
ég fékk þarna alveg svakalega fallega eyrnalokka og draumafangara.


þarna skoðuðum við sætar verslanir og borðuðum sérlega gómsæta borgara með brie ost og annað góðgæti.

þennan foss skoðuðum við líka og ég þorði að fara í svona lyftu upp að honum og ganga yfir brúnna yfir fossinn sjálfan. mér fannst ég með eindæmum huguð enda lofthrædd manneskja á ferð!

michael jackson var víst í borginni í vikunni. við sáum hann ekki! kannski eins gott...hehe...