Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, september 29, 2003

á fimmtudaginn byrja ég að læra að mála eins og listamaður. hehh...
ég er búin að kaupa pensla og liti og striga og allt. vonandi klúðra ég þessu ekki alveg! hefur alltaf dreymt um að geta málað fallega mynd. sjáum hvernig gengur.

af hverju bera frakkar bara fram um 50% af rituðu máli? alveg furðulegt tungumál hvað það varðar. hvers vegna til dæmis að skrifa "s" svona oft í enda orðs fyrst því er bara sleppt almennt í framburði? eitt dæmi er orðið "dents" sem er borið fram með "d" í byrjun og svo afbakað "a" á eftir því!
annað merkilegt atriði í þessu tungumáli eru tölurnar. af hverju segja menn til dæmis "quatre-vingt dix-neuf" þegar þeir geta sagt nítíu? hverjum datt þetta eiginlega í hug? kjánalegt.