ekki mikið verið að skrifa þessa dagana. nóg að gera samt.
foreldrar hans tomma eru í heimsókn og við erum búin að vera í túristafíling í nokkra daga. fórum til quebec city, heimsóttum indíána, gengum yfir brú yfir svakaháan foss, fórum í búðir og margt fleira.
ég fór svo í stöðupróf í frönsku í gær og stóð mig með óprýði...hehh...verð líklega sett í byrjendahópinn. enda er ég byrjandi.
í gær gengum við upp á fjall og horfðum yfir borgina frá útsýnispalli þar til gerðum. mjög fallegt.
veðrið er búið að vera svakalega gott og vont í leiðinni. hér er svo rakt (í dag 88% raki) að maður á bágt með að anda, hvað þá ganga upp á fjall. *andköf*
ég set inn myndir við tækifæri.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home