Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, september 22, 2003

byrjuð í frönsku. fór í fyrsta tímann í dag og gekk svona líka svakalega vel...hehehe...er búin að læra flest sem kennt verður fyrst um sinn og þarf því að hanga þarna að hlusta á byrjendurna æfa sig að segja "je m'apelle fangfang" og svo framvegis (það er ein sem heitir fangfang).

tommi var að enda við að prófa nýja gítarmagnarann sinn og sýnist mér hann bara vera nokkuð ánægður. búinn að prófa að spila nokkra slagara og ac/dc. hehehe...

helgin var fín. fórum í partý eins og gefið var til kynna í síðustu færslu. partýið var líka bara fínt. á boðstólum var bolla með 94% spíra í og held ég að það hafi ekki farið nógu vel í mannskapinn. einnig var á boðstólum melóna sem búið var að drekkja í vodka fyrr um daginn og gerði hún útslagið hvað nokkra veislugesti varðar...ehhh... sumsé sumir vöknuðu með hausverk og aðrir fóru heim þegar kvöldið var hálfnað og voru samt með hausverk. ég náttúrulega vaknaði hress að vanda og hakkaði í mig harðfisk tomma til mikillar ánægju. hehh..

jæja...nú vill tommi að ég hætti. adios