Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

nú er maður tuttuguogsjö. mér finnst það nú bara hálffúlt...hélt að ég væri enná átján! óvell...

ég hef ekkert skrifað í svakalega langan tíma. vótsj! hmmm...sko það sem gerst hefur síðan ég skrifaði síðast er að við héldum matarboð, ég átti afmæli, við fórum til quebec city, ég varð eitthvað lasin eftir það og tommi líka, ég skráði mig í nám í vetur og fór á hljómsveitaræfingu. víha!

matarboðið var fyrir hljómveitina hans tomma. ég eldaði kjúklingabringur að hætti mömmu og bjó til suverän kartöflusalat með. heppnaðist bara mjög vel og fólk fór ekki heim fyrr en klukkan fjögur og einn sofnaður á borðstofuborðinu. svo var líka horft á "með allt á hreinu" og hlegið yfir henni...gaman að komast að því að útlendingum finnst þessi mynd líka skemmtileg (hún er sko með enskum texta á dvd). sumsé snilld.

við vöknuðum seint á laugardaginn og keyrðum eins og leið liggur til quebec city. þegar við komum þangað var bara ískalt og rigning! hitastigið var rétt fyrir ofan tíu gráðurnar og við tommi neyddumst til að kaupa okkur yfirhafnir. við keyrðum eitthvað um þarna og fundum eitthvað tívolí sem við skruppum í og skoðuðum og ég sá sætasta póní í heiminum sem var sofandi. hann var alveg agalega feitur en pínulítill og ótrúlegt krútt. svo fengum við að klappa geitum og kindum og litlum grís. alveg frábært.
við fundum okkur hótel aðeins útúr bænum en þau sem við prófuðum inni í bænum voru stútfull, líklega af því að það var maraþon þarna á sunnudaginn og einhver hátíð fyrir herlúðrasveitir. huh?
sunnudagurinn var svo mun heitari og við betur sofin. við náðum að skoða gamla bæinn ansi vel og fá okkur gott að borða. quebec er mjög falleg borg verður að segjast og fólkið afskaplega vinalegt. maður á ábyggilega eftir að fara aftur þangað.

í gær fór ég og skráði mig í nám hjá saidye bronfman centre of the arts og verð þar að stúdera næsta vetur. alveg er ég rosalega ánægð með það og hlakka svakalega til að byrja. ég verð líka á frönskunámskeiði í haust og fram í desember þannig að það verður nóg að gera hjá mér...jafnvel of mikið.

svo er maður alltaf að æfa með hljómsveitinni. við erum komin með ágætisprógram núna með lögum eins og "hella good", "midnight at the oasis", "you've got the love" og "sing a simple song"...allt fönkí og grúví stöff. planið er að spila einhvers staðar í lok september og bjóða öllum sem við þekkjum. hehehhee...

jamm og jæja...held ég segi þetta gott í bili. písát.