kominn laugardagur og sólin skín enn. hér var eldað fínt í gær og bökuð kaka. síðan var góðgætið etið á meðan horft var á "með allt á hreinu" og hlegið dátt. jeff vinur hans tomma kom svo akandi með kærustu sinni og nágranna og við skelltum okkur aðeins út á lífið. nágranni hans var meira en lítið skrítinn. hann var algjörlega hæper allt kvöldið og var alltaf að tala um frið og virðingu og hreyfa hendurnar rosahratt. mjög sérkennilegur náungi. ég kunni nú ágætlega við hann af því að hann kallaði mig sólskin. hverjum er illa við það, að vera kallaður sólskin...
í morgun vöknuðum við upp við að lögfræðingur nokkur hringdi í tomma. gæinn sem er búin að vera að reyna að kaupa gömlu loftkælinguna af okkur síðan í gær. hann er eitthvað voðalega bissí og ætlaði að koma í gær og lét okkur bíða í nokkra klukkutíma eftir sér en kom svo aldrei. svo hringir hann fyrir allar aldir og bara mættur fyrir utan!!! þegar hann kemur inn úr dyrunum blasir við okkur óldtæmer með litaðar krullur og litað skegg í gulri skyrtu og gulum stuttbuxum. svakalega smart.
hann er ennþá fyrir utan og tommi með honum. örugglega að ræða um heimsins vandamál og lausnir. maðurinn gaf víst út plötur í den og vinnur í innflytjendabissnessnum.
já og þegar kom að því að borga gripinn varð hann náttúrulega að prútta aðeins eins og góðum lögfræðingi sæmir en dró svo upp mjööööööööög þykkt seðlabúnt og sagði að við ættum ekkert að taka mark á því, væri bara tímabundið...nei bara djók svo. mjög skrýtið allt saman en við seldum dótið og nú er meira pláss í íbúðinni okkar...hehehe
í dag eru svo tónleikar hjá tomma og það verður nú gaman. alltaf gaman að spila eða vera á tónleikum. jess!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home