Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, júní 11, 2003

og þá er frumsýningin af "a chorus line" búin. gekk bara fínt. ég er bara í fyrstu tíu mínútunum af sýningunni eða svo. en það er samt stórskemmtilegt. alltaf gaman að vera á sviði. svo er þetta líka svo flott sýning.

í gær reyndi ég að kenna kanadamanni að smala kindum. sýndi honum að maður ætti bara að veifa höndum og hlaupa á eftir þeim í rétta átt og öskra hluti eins og "svona, farðu...hó, hey..." o.s.frv. honum fannst þetta alveg stórsniðugt. mér fannst það líka.

í augnablikinu er ég að snæða bláberjavöfflur með maple syrup (hlynsýrópi). alveg ofboðslega kanadískt. it's delish...!

oooooooooooog svo er ég að fara að syngja með hljómsveitinni aftur sem ég trallaði smávegis með í þarsíðustu viku. núna verður það í æfingahúsnæðinu með öllum græjum og öllum hljómsveitarmeðlimum. víha. vonandi að það gangi vel. þarf að æfa nokkur lög fyrir það. da funk is in da house!