Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, júní 29, 2003

nú styttist í að við flytjum. úffpúff...ég verð fegin þegar það verður búið! fórum á hulk áðan í bíó. fín mynd bara og vel gerð. nú eigum við eftir að fara á charlies angels 2, terminator 3, bruce allmighty og fleiri... rosalega mikið af myndum í bíó núna!

við fórum líka á jazzhátíðina í gærkvöldi. hittum þar tvær sigrúnar, einn birgi, einn halla og jóhann og jóhönnu. svo var einhver evangeline að þvælast þarna líka...hehehe. kíktum aðeins á fríu útitónleikana og enduðum svo á skemmtistað/bar/kaffihúsi og sátum þar og tzjilluðum í einhvern tíma.

á morgun mætir gellan sem ætlar að flytja í þessa íbúð með allt sitt hafurtask og treður því hingað inn sem best hún getur. við verðum því að koma okkar stöffi fyrir þannig að það taki sem minnst flatarmál. þess vegna þurfum við að taka tölvuna úr sambandi eitthvað og róta þessu til hérna. síðan verður kannski niðri og lítið bloggað á meðan. og svo þegar við flytjum í nýju íbúðina verður síminn ekki settur upp fyrr en 2. júlí og það þýðir að síðan kemst upp í fyrsta lagi þá. jæja...you'll live!