meira stuðið á þessum bænum eða þannig...
eina sem ég geri þessa dagana er að sofa og fara á æfingar. hlakka bara til að fara að sýna þó skrautlegt verði. leikstjórinn er ennþá að jafna sig og óvíst að hún komist á generalprufuna!! það er nú meiriháttar skrýtið. en fólkið í sjóinu er skemmtilegt og við skemmtum okkur án efa mjög vel við þetta. er það ekki fyrir öllu?
svo er hann tommi að verða þrítugur bráðum og þeir sem geta eru velkomnir í partý hjá okkur þrettánda júní klukkan átta. og ég samdi vísu í tilefni af því:
þrjátíu árin þraukað hann hefur
þyrstir í teiti og vín
bolla á borðum og nágranninn sefur
boðskortið sendi til þín
þér er því boðið í veisluna góðu
þrírþrírfimm avenue clarke
mjöðinn með komdu og kinnarnar rjóðu
"à huit heures" hittir í mark

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home