Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, júní 28, 2003

loksins var hægt að blogga! þurfti sko tölvusnillinginn tomma til að finna útúr þessu hérna hjá mér. blogger eitthvað búinn að breyta og ég náttlega verkfræðingurinn kunni ekkert á þetta. hehehe...

annars er bara snilld hér í montreal í dag. í gær kom fólk og pakkaði niður draslinu okkar og ég þarf því ekki að hafa áhyggjur af því. í gærkvöldi fórum við tommi niðrí bæ að horfa á jazzfestivalið og enduðum á tónleikum með sænskum og norskum jazzgeggjurum. í dag fórum við á eggspectations og ég fékk mér french toast með blönduðum ávöxtum og ávaxtakokteil...og í kvöld förum við líklega aftur á jazzhátíðina að kíkja eitthvað og hitta fólk sem við þekkjum hér. ofsalegt stuð og skemmtilegheit. :-)