Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, júní 02, 2003

jamm og jæja. kominn tími á að blogga smá núna. var að koma úr bíó. fór ein á hafið í litlu artífartíbíói niðrí bæ. er ennþá að jafna mig eftir myndina. ég fór ein af því að ég var í skapi til þess. nennti ekki að tala við fólk í dag eiginlega...einhvern veginn of þreytt.
hafið er með betri íslenskum myndum sem ég hef séð. hún fær mann til að sakna íslands að vissu leyti en líka til að muna eftir því hvers maður saknar ekki. þetta er náttúrulega ýkt mynd af lífi í sjávarþorpi úti á landi en samt sem áður hefur maður heyrt um flest sem gerist í myndinni. allir þekkja alla og maður getur ekkert farið. frústrerandi.
ég grét helling og fann til með fólkinu í myndinni. hálfömurlegt allt saman.

svo var nú meiriháttar atburður á æfingu í gær fyrir west side story. leikstjórinn fékk heilahristing!!!
hún var að sýna þeim sem leikur "chino" að hann ætti bara að hrinda "maríu" almennilega...sagði við hann ógnandi: "come on david, push me..." og hann ýtti...og hún datt...og hausinn skall aftur og við heyrðum öll hljóðið þegar hann dúndraðist í gólfið. ferlega óhugnanlegt hljóð. ég heyri það ennþá.
við fórum og náðum í klaka og hringt var á sjúkrabíl. í ljós kom að hún hafði fengið vægan heilahristing en allt virtist í lagi og nú er hún í afslöppun heima hjá sér að jafna sig.
við æfðum sumsé leikstjóralaus allan gærdaginn á fyrsta sinn á sviðinu og komumst yfir allan söngleikinn á þremur tímum. nokkuð gott bara...hehhh...

svo var nú þrusustuð hjá okkur íslensku gellunum hérna í montreal á laugardagskvöldið. mættum til hennar sigrúnar jennýjar upp úr fjögur og fórum nokkrar í nudd þar. svo bjó halli maðurinn hennar til kokteila og stóð sig prýðisvel sem barþjónn. síðan var haldið á veitingastað sem heitir newtown og held ég alveg örugglega að hann villnöff formúlubílstjóri eigi staðinn. þar sátum við og borðuðum heillengi og enduðum svo á því að fara niður í kjallara á diskótek staðarins. eftir það var farið á annað diskótek en ég gafst upp á að bíða í biðröðinni eftir að komast inn í rigningu á háum hælum og þurfti líka að fara á heilsdagsæfingu daginn eftir. held að það hafi bara verið fín ákvörðun hjá mér.
hér er svo mynd af okkur öllum...yvonne vantar...hún komst því miður ekki...