Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, júní 14, 2003

halló! ekkert bloggað mikið upp á síðkastið. slappt bara. búin að vera busy að halda afmæli og dansa fyrir pöbulinn!

í kvöld var næstsíðasta sýningin á "a chorus line", sú síðasta verður annað kvöld. sveiattan. ég er eiginlega búin að venjast því að vera alltaf að fara að sýna. mér finnst það gífurlegt stuð. væri alveg til í að gera það oftar.

afmælið í gær gekk svakavel bara. buðum góðu fólki heim og það var sungið og spilað og tjúttað eitthvað fram á nótt. aumingja nágranninn. ég var samt búin að senda honum bréf og bjóða honum í afmælið ef hann þyrði og segja honum að hann mætti alveg mæta með hnefann á hurðina ef honum fyndist við of hávær. hann hefur kannski bara forðað sér. hehehe.
núna er tommi staddur á ozzy osbourne tónleikum ásamt nokkrum öðrum. fékk sms frá honum áðan þar sem hann tjáði mér að tónleikarnir væru "klikkaðir" eins og hann orðaði það. hlýtur að vera góðs vísir.

svo er ég að fara að syngja með bandinu aftur á morgun. hljómborðsleikarinn mætir víst líka...þannig að við verðum fjögur. gaman að því. á meðan á því stendur fer tommi að horfa á formúluna með öðrum íslendingum hér...fékk miða í afmælisgjöf og eyrnatappa með. ;-)

ég er bara að fara að smella mér til íslands á miðvikudaginn í nokkra daga. gat bara ekki sleppt því að fara í afmælisboð hjá uppáhaldsfrænku minni henni þóru áslaugu alnöfnu mömmu. skyldumæting. jess. lakkrís here i come!