Hæ hæ hæ!!!
Já, þið heyrið rétt, þetta er ég, Tommi! Ég vissi að þið mynduð kannast við röddina! Þar sem Stína er nú annaðhvort að spássera í New York eða í flugvélinni á leiðinni til Íslands, ákvað ég að stelast til að blogga smá. Það er synd að segja frá því að ég, "tölvugúrúinn", hef aldrei bloggað, því er þetta tilvalið tækifæri þar sem stína getur ekkert gert til að stoppa mig.
Því miður hef ég frá litlu að segja :-|
Nema þá kannski það að ýmislegt var á seiði um síðustu helgi (t.d. afmæli, leiksýning, tónleikar, partý, formúlan og fleira smálegt). Í tilefni af því ætla ég að leyfa ykkur að sjá stórgóða mynd sem ég náði af Michael Schumacher rétt áður en hann skaust eins og gedda yfir ráslínuna og fagnaði sigri í kjölfarið. Af lúmska glottinu á svipnum á honum og hvernig hann hallar örlítið undir flatt, að dæma, myndi ég segja að hann hafi verið nokkuð sigurviss...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home