Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, júní 09, 2003

úff púff og púff!

nú er west side story búið og tónleikarnir líka og bara chorus line eftir. tommi var svo góður að taka upp tónleikana og má finna hljóðupptöku af þeim hér...

söngleikurinn gekk svona upp og ofan. föstudagssýningin var hræðileg enda í fyrsta skipti sem við fórum í gegnum allt í einu. laugardagssýningin var bara nokkuð góð. dagssýningin í gær var sæmó og lokasýningin bara fín. svona miðað við aldur og fyrri störf. svo var partý í gær eftir sjóið langt fram á nótt og allir orðnir svakagóðir vinir. stórskemmtilegt alveg. ég kynntist fullt af skemmtilegu fólki og skemmti mér konunglega við að leika mean gang chick! það verða ábyggilega einhverjar myndir frá þessu settar á vefinn næstu daga...set link hér ef það gerist.