Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, júní 21, 2003

El Tom hér!

Jæja, ég var að skríða inn, sveittur eins og skötuselur eftir tæplega 3ja tíma hjólreiðatúr!

Í dag var 28°C hiti, heiðskýrt og hreinlega alger steik. Ég lagði í'ann um kl 3 og byrjaði á því að hjóla upp fjall! Sem er ekki góð hugmynd eins og ég komst að hálfa leiðina upp, helmóður. Betra að hita upp fyrst. ...allavega, ég komst á toppinn og skoðaði ríkra manna hverfið útsýnið sem það hefur. Ég vildi bara að ég hefði haft myndavélina. Sást vel inn til bandaríkjanna og alla eyjuna svo til (Montreal er á eyju). Eins og ég sagði, þá var ansi heitt í dag og ég að sjálfsögðu var í gallabuxum og svörtum þykkum bol! Já, ég er Íslendingur :-/ Jæja, ég ákvað að setja einhverja endapunkta á þessa ferð svo að hún hefði einhvern tilgang (við karlmennirnir verðum alltaf að hafa markmið ;-) þ.a. ég hjólaði að hljóðfærabúðinni á Jean Talon, sem er "diagonally" hinum megin (norð-austan) við fjallið frá heimili okkar (suð vestan)... sem sagt slatta langt í burtu. Hún var lokuð. Hrmpf. Jæja, næsti áfangastaður var hin stóra hljóðfærabúðin sem er fyrir sunnan fjallið. Ég þangað. Þurfti að taka smá króka en komst á staðinn... Búðin var opin!!! Jess. Ég lagði hjólinu og læsti nýja lásnum mínum, labbaði að innganginum þar sem maður tjáði mér á frönsku að búðin væri lokuð þar sem klukkan væri orðin 5. Hrmpf2!!! Kannski eins gott því ég hefði eflaust labbað út með nýja harmonikku. Jæja, næsta stopp... Fór í búðina, keypti bönsj að drekka og Sushi bakka. Svo þegar ég skreið inn úr dyrunum hringdi Örn og spurði hvort ég vildi ekki koma að hitta þau og fara út að fá okkur... sushi! Jæja, jú, endilega, ég skelli mér bara... "seilaví" eins og innfæddir segja.

PS: ég kveikti á mediaplayernum rétt í þessu og tók eftir því að hljómborðsleikarinn gerir áberandi feil í "It ain't over 'till it's over" með Lenny Kravitz, þegar gítarsólóið er rétt byrjað!!! Og þetta er stúdíóupptaka! Jæja, þetta er víst kallað "rokk"! Og jú, stundum hef ég of mikinn lausan tíma. :-/