Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, maí 15, 2003

var að máta gamla táskó sem ég á. úff! þokkalega vont að standa á þessu. ég nefnilega tók með mér par af táskóm og fyrstu ballettskóna mína hingað eftir páskafríið...og gömlu spiladósina mína sem ég fékk í danmörku þegar ég var lítil. nokkrir svona nostalgíuhlutir sem er ágætt að skoða endrum og eins.

ég var að kaupa nýjan kodda. fékk meira að segja prescription frá lækninum og fæ hann líklega endurgreiddan frá tryggingunum...almennilegt. allt gert í hausverkjarátakinu. jess. nú á ég bara eftir að fá mér sólgleraugu og þá verð ég örugglega fín. :-)

nú fer að líða að tónleikum...ætlum að hitta örn og sigrúnu í mat og svo drífa okkur á paprikurnar. nú er sko komið stuð. yeah!