Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, maí 29, 2003

svakalega er ég syfjuð í dag. *geisp*

svo er maður að fara út að borða með montrealgellunum hér á laugardagskvöldið...það verður svakastuð. skelli kannski inn myndum af því seinna.

mig langar í lakkrís og sterkan brjóstsykur. er ekki einhver sem vill senda mér svoleiðis? alveg ómögulegt að búa í landi þar sem ekki fæst svona góðgæti. maður fer alveg á þörfina eftir vissan tíma.

það er að koma júní...vátsj! ótrúlega er þessi tími alltaf fljótur að líða. júróvisjón búið og allt!