Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, maí 11, 2003

snilld! ég sendi kveðjupóst á fréttastofu ruv núna rétt áðan og hann var lesinn upp...jess...

"ég sit hér í montreal í kanada og var rétt áðan að ræða við vinkonu mína í ungverjalandi, sem var og að hlusta og horfa á ykkur í beinni...þar áður talaði ég við fjölskyldu á íslandi og bróður í finnlandi, allir að fylgjast með!

hér er beðið eftir lokatölum...klukkan rúmlega tvö um nótt!

kveðja úr blíðunni í frönskumælandi montreal,
Kristín"

takk fyrir það...alltaf gaman að koma í sjónvarpinu...þó ekki sé nema óbeint.