smá leti í blogginu sko...hehehe...var bara á æfingum í allan gærdag og sat föst fyrir framan júróvisjón á laugardaginn. hmmm...
nú er tommi farinn til kaliforníu að tína appelsínur...eða þannig. hann er líklega í flugvélinni núna að tszjilla.
og hey, það er búið að aflýsa sýningu á laugardagseftirmiðdaginn þ.a ég hef plenty tíma fyrir tónleikana...jess...allir að mæta sem geta. styðja mig með spjöldum og hrópum og klappi. eða ekki.
það er svoooooooooooooo rakt hérna núna. búið að rigna í nokkra daga svona af og á og loftið er bara ógeð. þungt og rakt og fullt af frjókornum. ég t.d er búin að vera með stíflað nef í dáldinn tíma og fattaði bara í fyrradag að ég væri bara komin með eitthvað ofnæmi...allavega góð ágiskun hugsa ég af því að ég keypti mér klarítín og það bara svínvirkaði. aldrei áður á ævinni hef ég fengið ofnæmi! allsvakalegt.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home