schnilld! birgir stóri bróðir hennar bjargar komst inn á þing! það er nú meira vit í að hafa hann þar en isg. annars á nú eftir að raða þessu aftur hjá samfylkingunni alveg örugglega.
ég vakti í næstum alla nótt og horfði á beina útsendingu á ruv.is, svakalega góð útsendingin...munur ef það væri hægt að horfa á alla dagskrá sjónvarpsins svona.
svo er ég nú alltaf meira og meira að komast að því hvað ég ætla af mér að gera næsta vetur og svoleiðis...stefnir í skemmtilegheit ef allt gengur upp. meira um það síðar. :-)
hér er hin mesta blíða þó skýjað sé, ég hef ekkert á móti skýjum, mér finnst þau bara alveg ágæt. samt ef maður spáir aðeins í þau og gerir sér grein fyrir að þarna yfir okkur lafa skrilljón tonn af vatni þá er manni kannski ekkert sama...hehh..
tommi kemur í kvöld og mánudagurinn á morgun.
amen.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home