nú er búið að skipuleggja tónleika sem verða 7. júní hér í montreal á þessum stað...og það er víst hægt að kaupa miða online þarna líka. ég verð í west side story um leið og þessir tónleikar byrja og bruna svo á staðinn og tek eins og einn slagara svona rétt í lokin. hehehe...
maría mágkona á afmæli í dag...tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiil hamingju maría!!! hmm...fann enga mynd af henni, allt tapað frá því að lappinn okkar gaf upp öndina. engu að síður bráðhugguleg stúlka þar á ferð. :-)
fór í söngtíma í dag og hún sylvie var alveg svakalega hörð við mig. píndi mig til að improvisera og allt! ég bara fór í feimniskast og kom ekki nokkrum tón uppúr mér. hehh... svona eins og að segja brandara eftir pöntun. alveg ómögulegt.
svo eru ótrúlega margar þungarokkshljómsveitir að koma hingað með einhverjum gítardúdum innanborðs...sumsé heaven fyrir tomma gunn! ozzy osbourne er að koma, dreamtheatre og queensryche, metallica, linkin park, deftones, limp bizkit og iron maiden. púff! ég skelli mér án efa á flest af þessu með honum tomma mínum enda finnst mér yfirleitt megastuð á tónleikum...sama þó að það séu ekkert nema gítarsóló og öskur...hehehe.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home