Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, maí 08, 2003

jamm og jæja...fékk töfrapillur í dag hjá lækninum og hausverkurinn á leiðinni til fjandans. gott, mjög gott.
svo pantaði ég mér tíma í sjónpróf og nudd og nú skal þetta virka!

ég sá algjöra snilld á leiðinni heim í dag. fór í skóbúð að vanda og sá þar glæsilega skó frá cole haan, hælaháa með nike air púðum og þeir voru meira að segja flottir! ég stóðst náttúrulega ekki skóna og mátaði og viti menn, þeir voru undursamlega þægilegir. þeir voru líka ansi dýrir.

nýjustu fréttirnar hér eru að halle berry er að leigja sér hús í westmount og sést iðulega á vappi í metro matvöruversluninni og java u kaffihúsinu...ég fór einmitt á þetta kaffihús um daginn með nokkrum íslenskum stúlkum hér og þar var tekin mynd .