hvað er eiginlega í gangi á tilverunni og batman.is?? annar hver linkur þarna fjallar um femínista og eitthvað tengt þeim. þetta virðist vera mál málanna á íslandi í dag. jahérna. ég var nú aðeins að skoða þessa síðu þarna hjá femínistafélaginu og ég varð bara ekki par hrifin. mér finnst þetta of öfgakennt hjá þeim og eiginlega bara hallærislegt. þetta er eitthvað svo mikill rembingur. maður fær á tilfinninguna að konurnar þarna séu á móti strákum og ekki er það nú sniðugt. ég skil ekki alveg hvernig stelpur fá það út að það verði meira jafnrétti ef búnir eru til tveir hópar...stelpur annars vegar og strákar hins vegar. væri ekki sniðugra að reyna bara að hafa þetta einn stóran hóp þar sem einstaklingurinn skiptir máli, án tillits til kyns? af hverju þurfa stelpur endilega einhvern sér flokk? ég skil ekki alveg þessa lógík hjá þeim.
er annars einhver þarna úti með vinnu fyrir mig? ég er búin að sækja um í nokkrum blómabúðum, skoða atvinnuauglýsingarnar daglega og senda cv-ið mitt útum allt. ekkert gengur. ég held að ég sé ekki nógu aggressív. svo grunar mig líka að fólk vilji ekkert ráða verkfræðinga til að vinna í blómabúð... god damn!
svo er annað sem mér finnst ansi skrýtið...ungir vinstri grænir voru að halda "che guevara" kvöld í vikunni. er þetta fólk virkilega svona miklir kommúnistar? jahérna! er fólk ennþá að halda að kommúnismi gangi upp? sumt fólk lætur bara ekki segjast. þeim finnst kannski bara líklegt að þeim takist að gjörbreyta hugarfari og lífsskoðunum meirihlutans á íslandi.
æi er ekki nóg komið af þessari ópólitík hjá mér? það er bara eitthvað mikið í gangi á íslandi...fólk virðist vera alveg komið með nóg af davíð.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home