ég sótti um frönskunámskeið í gær. veit ekki hvort ég fékk pláss en ég vona það. byrjar reyndar ekki fyrr en í september en stendur í heila þrjá mánuði. rokk og ról!
fer í söngtíma í dag...fyrsti söngtíminn í laaaaaaangan tíma. og ég sem er ekki búin að æfa mig neitt eiginlega. ojæja, ég bara tek á því núna fyrir tónleika og massa þetta 7.júní.
tommi fer til íslands næstu helgi að spila á balli! ætli hann fylgist ekki líka með kosningunum drengurinn.
hey, ef það er einhver að gifta sig í lok júlí þá skal ég með glöðu geði syngja í brúðkaupinu...hehehe...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home