ég held barasta að sumarið sé komið hjá okkur hérna. sólin skín og það eru um tuttugu gráður úti. algjört ísveður bara.
dorrit og óli frændi bara gift. jahérna...til hamingju til þeirra. mér finnst hann óli bara ágætur forseti.
ég er svotil hætt að drekka kók. drekk einstaka sinnum diet caffeine free kók bara til að fá bragðið...en alvöru kók með örvandi caffeini er bara ekki gott fyrir mig. takk fyrir það.
hey, fórum á x-men 2 í gær. sátum á öðrum bekk! þetta var bara ágætisafþreying. mér fannst reyndar þessi betri en fyrri myndin. merkilegt. nú bíðum við bara eftir að sjá matrix reloaded. það var byrjað að sýna hana í gær og geri ég ráð fyrir að það sé uppselt í dag á einhverjar sýningar og troðfullt í bíó. við ætlum því að bíða aðeins og sjá hana eftir nokkra daga.
er fólk ekki annars farið að bíða óþreyjufullt eftir eurovision? ég er nú annars smá svekkt yfir því að hún heiti birgitta gellan sem kemur frá íslandi. mér finnst ég eiga einkarétt á nafninu...kristín birgitta...god damn!
mmm...sade er góð...your love is king, crown you with my heart...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home