fráááááááááááábærir tónleikar!!! algjör snilld!
það voru tvær hljómsveitir sem hituðu upp...önnur var alveg vond og spilaði hávaða með hátíðniöskrum. seinni hljómsveitin var vel þekkt, allavega hér...queens of the stone age. þeir rokkuðu feitt. massíft og þétt sánd hjá þeim félögum en fúlt að söngvarinn úr fúfæters og fyrrum trymbill nirvana sé ekki lengur að tromma fyrir þá. og þó. nýji trommarinn er rosalegur. hann barði húðirnar alveg í tætlur. og tattúveraður eins og tommy lee, við héldum á tímabili að þarna væri kominn exið hennar pamelu, þó ekki í dallas.
paprikurnar rúluðu alveg. flea er náttúrulega stórruglaður og heldur hjá manni athyglinni með furðulegum hreyfingum og óskiljanlegum kommentum. anthony kiedis söngvari red hot er líka mjög skemmtilegur á sviði. danssporin hans eru einkar áhugaverð. hann átti það t.d. til að hrista á sér rassinn alveg rosalega hratt í gær við miklar undirtektir áhorfenda.
en sumsé, góðir tónleikar í flesta staði og fullt af stuðprikum. næst verður farið á ozzy osbourne held ég...hehehe
svo er ég komin með þessi líka fínu sólgleraugu...í þetta skiptið gerðist ég praktísk og ekki tískufórnarlamb og keypti nothæf gleraugu, létt með góðum glerjum sem eiga að endast mér í allavega nokkur ár. hallelúja!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home