Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, maí 27, 2003

úff! það er nú ekki eðlilegt hvað það er vont loft hérna inni hjá mér núna. þýðir ekkert að opna glugga...þá hleypir maður bara meiri raka inn og frjókornum. nú er ég búin að setja rakasuguna í gang og viftu og vonast eftir betri öndun. skelli mér í ballett á eftir og skil græjurnar eftir í gangi bara og þá ætti ég að geta sofið í nótt.

það var hringt í mig frá casting fyrirtæki í gær og ég hefði getað verið að leika extra í einhverri bíómynd ef ég hefði ekki þurft að æfa dans í morgun...god damn! óvell. vonandi verður bara hringt í mig aftur bráðlega þegar ég hef tíma í að hanga einhvers staðar í bananabúning og vera kannski eitt sekúndubrot á skjánum.