Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, maí 03, 2003

það er loksins komið tiltölulega gott veður í montreal. spáin fyrir næstu daga slagar í tuttugu gráðurnar og er það vel.

sjónvarpið er dottið út hjá okkur. :-( við sjáum núna aðeins þrjár stöðvar...kannski gott á okkur af því að við keyptum aldrei "cable" þjónustu....hehhh...núna getum við ekki horft á american idol, seventies show, bachelor, seinfeld, friends og allt heila klabbið. óvell. hugsa að við kaupum okkur sjónvarpsþjónustu þegar við flytjum.

alveg merkilegir þessir kaþólsku prestar! núna í vikunni voru tveir frá new jersey teknir fyrir að kaupa þjónustu hjá ungum drengjum í hinsegin hverfinu hérna. annar þeirra sagði eitthvað á þá leið að hann hefði átt að spyrja drenginn um skilríki!!! svo er þetta fólk að predika gegn samkynhneigð. ótrúlegt hvað fólk getur skýlt sér með trú og embættum.

hey, við leigðum myndina "the secretary" um daginn. mjög furðuleg mynd en áhugaverð. ekki sama hollívúddvellan og venjulega sem er gott. sem er mjög gott.