Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, maí 14, 2003

það er hætt að rigna loksins. samt ekki alveg komið stuð ennþá.

annað kvöld förum við á tszjillípepperstónleika...húrra fyrir því! þá verður bókað stuð.

stóð mig gífurlega vel í ballett í gær og er það nýjum skóm að þakka. hún sheila lawrence sagði "good christine" oft og mörgum sinnum og líkaði mér það bara vel. áfram ég!
nú þarf ég bara að losa mig við bólgur og nokkur kíló og þá get ég orðið primaballerina. stina ballerina, hljómar bara nokkuð vel...hahaha