Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, maí 18, 2003

það er búið að vera bjútífúl veður um helgina og spáin fyrir næstu daga er svakalega góð...sól og hlýtt. jess!

við sáum matrix reloaded um daginn...flott mynd en ekki jafngóð og sú fyrri fannst mér. nú bíður maður bara eftir þessari númer þrjú...hún kemur víst í nóvember. ef maður bíður nógu lengi eftir titlana í bíóinu þá kemur treilerinn úr þriðju myndinni...bara ef fólk veit ekki af því.

við fórum í ágætan göngutúr í gærkvöldi niður í bæ. nú er fólk farið að klæðast stuttum pilsum og hiphopátfittum í gríð og erg. á leið okkar niður í bæ eftir st. catherine sáum við hrikalega fyndna senu. það voru nokkrir blökkumenn klæddir í stórar buxur og með klúta um hausana að dandalast eitthvað inni í og við mini van sem einhver þeirra hlýtur að hafa átt. þetta var eins og tekið útúr myndbandi með einhverjum rapparanum á mtv. bílnum var lagt ólöglega (double parking) og hazard ljósin á...nokkrir sátu inni í bílnum og nokkrir stóðu fyrir utan hann að ræða við einhverja kunningja með viðeigandi látum og augngotum til kvenfólks í kring. bíllinn sjálfur virtist vera vel búinn, nýjasta gerð af þessum minivan og greinilega dvd spilari og skjáir á bökum framsæta og fyrir framan baksýnisspegilinn...ég sá ekki hvaða mynd þeir voru að horfa á en það var tónlist alveg á fullu...rapp og meira rapp. þegar við vorum komin rétt framhjá spyr tommi mig hvort ég hafi séð hvaða mynd þeir voru að horfa á...ég bara "nei, var það eitthvað sérstakt..?"..tommi: "hehe...þetta var gróf klámmynd". jahá...og þeir voru búnir að snúa skjánum frammí að gangstéttinni þannig að það færi ekki framhjá neinum hvað væri í spilaranum. mjög skondið allt saman.