Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, maí 28, 2003

enn rakaviðbjóður hér í montreal. maður reynir eftir fremsta megni að anda...gengur ekkert of vel. fór í danstíma í morgun og þurfti að setjast eftir hálfan tíma vegna gruns um yfirlið í vændum...agalegt. reyndar var ég ekki búin að nærast nóg og sofa nóg. týpískt.

svo er chorus line æfing í kvöld hérna rétt hjá. maður skellir sér þangað og reynir að hafa smá stuð.

jamm og jæja. hef ekkert að segja...get ekki beðið eftir að komast í loftkælda aðstöðu...mig vantar súrefni!!!