Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, maí 20, 2003

ennþá er hlýtt hér og hið besta veður.

við gengum niðrí bæ í gær og nutum blíðunnar. fengum okkur lunch á þrí amígós sem er mexíkanskur veitingastaður...ljúffengur matur og óáfengar margarítur...hehehe...algjört æði.
svo urðum við náttúrulega líka að fá okkur ís í tilefni af því að sumarið er komið. settumst í tröppurnar á place des arts og sleiktum sólina. það var nefnilega frídagur í gær hérna...hét í hittifyrra victoria day en þetta árið heitir hann annað hvort dollard day eða patriot day. quebecbúar eru ekkert að fíla þessar ensku hefðir.

svo var ég að skella nokkrum myndum inn á tölvuna...af chilipeppers tónleikunum...þetta var gasalega sniðug mynd. svo voru þarna þrír lúðar í röð sem stóðu þarna rétt fyrir framan okkur og voru alveg að farast úr óöryggi. greyin með unglingaveikina en langaði samt rosalega mikið að syngja með. gæjarnir tveir fyrir framan sungu með öllum lögum á tónleikunum...hástöfum. greinilega harðir aðdáendur þar.