Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, apríl 12, 2003

það var gífurlega fallegt veður í gær. sól og allt að 11° hiti. allt í einu var líka troðfullt af léttklæddum unglingum niðri í bæ. allir að sýna nýju vortískuna...hehehe.

við fórum í bíó í gær og sáum þrívíddarmynd. fórum í spes sal sem heitir imax og er svona extra stór skjár, extra mikið af hátölurum og extra sterkir geislar. myndin sem var sýnd fjallaði um titanic og maður fór í svona þrívíddarleiðangur um skipið sjálft á hafsbotni. við fengum svona spes gleraugu sem voru mun flottari en þessi týpísku þrívíddargleraugu (pappaspjöld með grænu og rauðu plasti), þau voru með hátölurum í og allt. mér varð pínulítið flökurt eftir þetta ævintýri enda mikið af sjó í þessari mynd. þetta er samt í fyrsta skipti sem ég sé svona mynd og mér fannst þetta mjög spennandi. á stundum fannst manni hlutir í myndinni vera alveg við nefið á manni. ég veit ekki hvort ég myndi þora að fara á þrívíddarhryllingsmynd.