ísland, fagra ísland...
nú erum við á íslandi í rok(na) stuði. búin að japla á lakkrís og kaupa sterkan brjóstsykur. alltaf furða ég mig jafnmikið á því hvers vegna útlendingum finnst ekki saltlakkrís og sterkur brjóstsykur góður. með útlendingum á ég við fólki utan skandinavíu...og líklega hollands líka, þeir eru nefnilega ansi miklir lakkrísátsmenn. hvað er annars með þetta rok? við erum jú í paradís rokelskenda, grindavík og það hefur bara ekki hætt að blása síðan við komum. held reyndar að það verði betra í dag en síðustu daga. sýnist sólin vera eitthvað að gera sig líklega til stórverka.
við britta og mamma fórum í búð í gær að kaupa páskaegg. þvílíkt og annað eins! við byrjuðum náttúrulega á að reyna við bónus en þegar þangað var komið lentum við fyrst í stappi við að finna kerru, allar uppteknar. svo þegar kerran var fundin stigum við inn í búðina og við okkur blöstu lengri biðraðir en augað eygði og fólk með fýlusvip. ókei, við bjuggumst reyndar við því þarna í "uppáhalds" versluninni okkar en héldum áfram nokkuð bugaðar þó. þegar við komum loksins að páskaeggjastandinum þá voru þar nokkur tætt egg í asnalegum stærðum frá enn asnalegri fyrirtækjum. það voru til bónusegg og einhver egg númer sjö frá nóa og síríus en ekki það sem okkur vantaði. við panikkuðum náttúrulega og reyndum að bakka með þessa stóru kerru en ekki gekk það nú vel. við tókum þá á það ráð að kalla yfir fólkið þarna hvort einhvern vantaði kerru og viti menn okkur tókst að gera góðverk í leiðinni, létum góðláta konu fá kerruna okkar fegins hendi.
við brunuðum svo í hafnarfjörðinn þar sem ódýr páskaegg voru auglýst. fjarðarkaup, fjarðarkaup, fk, fjarðarkaup! þar var alveg jafnmikið af fólki en lengra á milli hillanna þannig að okkur tókst að komast mun hraðar áleiðis en í bónus. ekki var úrvalið af páskaeggjum mjög gott og urðu nóa og síríus páskaegg númer fjögur...með strumpi... fyrir valinu. við gerðum dauðaleit af einhverjum sniðugum strumpum, opnuðum þá kassa sem voru þarna og vönduðum valið. á endanum vorum við bara nokkuð sáttar og náðum að klára innkaupin án þess að missa vitið í allri örtröðinni. britta reyndar varð frá sér af örvilnan á lokasprettinum þegar verið var að setja í poka og missti salsakrukku í gólfið en það var allt í lagi bara... einhver elskuleg kona kom og þurrkaði það upp.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home