Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, apríl 04, 2003

hér er ennþá skítakuldi og hávaðasamir nágrannar. reyndar sá ég vorlauka vera eitthvað að gægjast upp úr moldinni í gær, sem er óneitanlega merki um vorkomu. ég talaði við nidu litlu í gær og spurði hana út í gæjana fyrir ofan. sagana segir að leigjandinn sjálfur vinni á hóteli á vöktum...komi oft heim um nætur og þurfi stundum að fara í vinnuna á nóttunni, þess vegna heyrist oft í honum á ókristilegum tíma. inn til þessa manns flutti síðan eldri maður sem nida segir að sé "like his father" og hefur sambúðin greinilega gengið eitthvað illa hjá þeim miðað við rifrildi og hávaða. nú er hins vegar svo komið að hótelstarfsmaðurinn er bara fluttur út og bíður eftir að sá gamli (þ. der alte) fari að hypja sig. nida talaði við manninn og sagðist hann skilja angist okkar nágrannanna og að mikill misskilningur hafi verið á milli þeirra "feðga". nú sit ég hér og klukkan er rétt um tólf og frá því snemma í morgun hefur annar hvor þeirra verið að draga húsgögn um allt og labba mjög hratt til og frá. mig grunar að þetta sé annað hvort sá gamli að flytja sitt dót til og frá og er á leiðinni út eða sá ungi að taka sitt dót saman. ég vorkenni bara parketinu.

ég ætla svo að skella mér í klippingu í dag...ekkert alvarlegt, bara viðhald.