Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, mars 28, 2003

við sváfum illa í nótt. nágrannarnir fyrir ofan okkur...sem eru víst tveir karlmenn... héldu fyrir okkur vöku í alla nótt! þetta byrjaði líklega um miðnætti og engin smá læti. það heyrðust öskur, slagsmál, hlaup, húsgögnum ýtt um allt, eitthvað misst í gólfið...og þetta gekk á með hléum í alla nótt. þetta hljómaði ferlega óhugnanlega. við heyrðum annan þeirra segja "no, no, no" einu sinni en heyrðum ekki orðaskil heldur bara raddir. ef þetta heldur áfram verðum við bara að hringja á lögregluna. það gengur eitthvað mikið á þarna uppi, eitthvað slæmt. við vorum alveg á taugum yfir þessu í nótt, og ég stoppaði tomma þegar hann ætlaði að nota kústskaftið...mér líst ekkert á þessa nágranna, hvað ef þetta eru einhverjir fylliraftar sem gætu farið að vera með leiðindi? ég ætla að kvarta undan þeim í dag. ég bara efast um að hún nida litla geti sagt þeim að þegja. hugsa að það þurfi meira til en það.