skellti mér á kóræfingu í gær. fann þennan líka fína kór sem æfir ekki svo langt frá mér. hann heitir "yellow door choir" og er stjórnað af eleanor stubley sem er prófessor við mcgill háskóla. hún þjáist af ms sjúkdómnum og er þess vegna í hjólastól. mjög áhugaverð kona og ábyggilega góður stjórnandi...enda hefur hún slatta reynslu...hehh...
ég ætla að skella mér í inntökupróf fyrir kórinn næsta miðvikudag og sjá til hvort það verði ekki allt í góðu. held að þetta séu bara formlegheit...allavega gat ég alveg sungið með á þessari æfingu í gær án mikilla vandkvæða og hún stjórnandinn sagði mér að læra einn kafla fyrir næstu æfingu...mér skildist að ég yrði ein með efstu röddina í þessum kafla...hún er líka töluvert há þessi rödd og ég á tiltölulega auðvelt með það. :-) byrjar sumsé bara ágætlega.
núna sit ég og bíð eftir matnum sem ég pantaði á netinu...hann á að koma á milli ellefu og tólf. keypti mat fyrir um fimm þúsund íslenskar krónur og það er þokkalega mikið í mínum huga...býst við að það komi fjórir eða fimm stórir bréfpokar, enda keypti ég meira núna en vanalega...verið að fylla á ýmsar birgðir. starfsfólkið er svo elskulegt þegar maður pantar svona...hringir í mann og lætur vita ef eitthvað er ekki til og hvort maður vilji eitthvað í staðinn o.s.frv. og maður getur beðið um ráð og spurt hvað er vinsælast og svona. í morgun hringdi stúlkan og sagði mér að jarðarberin væru ekki falleg í dag...mér fannst það ofsalega elskulegt af henni því mér þykja ljót jarðarber ekkert spes.
á sunnudaginn er spáð 8 stiga hita!!! í dag er 17 stiga frost þannig að það verður mikið um bráðnun og slabb næstu daga býst ég við. ætli vorið sé kannski að laumast til okkar hér?

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home