í morgun þegar við tommi vorum að skríða úr rúminu mættu landlordinn og aðstoðarmaður hans til að gera við vaskinn inni á baði...aumingja mennirnir að þurfa að athafna sig í þessu drasli okkar...hehehe. allavega, ég nennti ekki að vera þarna og þurfa að halda uppi samræðum og bjóða upp á kaffi því ég á jú ekkert kaffi þannig að ég dreif mig bara í vinnuna með tomma. þegar við fórum út voru þeir búnir að rífa vaskinn frá veggnum og voru að skoða hann...hehhh...
það er greinilega komið vor hér í montreal...næstum allur snjórinn er bráðnaður og eftir standa götur og gangstéttir fullar af sandi og drasli. en mikið svakalega eru göturnar breiðar eitthvað svona þegar snjórinn er farinn. maður fær bara víðáttubrjálæði. ekki er nú enn komið brum á trén en ég bíð spennt eftir að sjá gróður og menn lifna við eftir vetrardvalann.
mér tókst að skipuleggja pappíra heimilisins í gær. ég fann ýmislegt merkilegt og henti öðru ómerkilegu. eins gott að vera búinn að koma þessu í lag. mikill léttir og klapp á bakið á sjálfri mér.
við tommi göngum iðulega inni í öndergrándinu leiðina á lestarstöðina...sumsé förum inn í westmount square (verslunarmiðstöð) og göngum sem leið liggur á atwater neðanjarðarlestarstöðina (þokkalega langt orð). á þessari leið er einn mjög langur gangur sem innréttaður er að mestu leyti af múrsteinum einskonar og er mjög hljóðbært þar inni...minnir hálfpartinn á hljóminn inni á baðherbergjum. þarna er reitur fyrir skemmtikrafta sem standa þarna nokkra klukkutíma í senn og spila ýmist eða syngja. maður þarf að sækja um hjá borginni til að mega standa þarna og manni er þá úthlutað vöktum o.s.frv. í dag var "hippakonan" svokallaða að syngja og spila á gítar. þetta er kona á miðjum aldri með sítt, grásprengt hár...skipt í miðju og slegið. hún stendur brosandi og syngur lög um ást og frið og þegar fólk gengur framhjá er það hennar markmið að fá vegfarendur til að brosa með henni. alveg yndislegt. hún syngur líka bara nokkuð vel. í dag var hún að syngja lagið "heart of gold"...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home