ókei. hvað er í gangi hérna?
í gær var ég svona rétt að ná mér úr hálsbólguflensuhóstsnýtufíling...komin með hóstsperrur og allt (harðsperrur í hóstvöðvana), skrapp rétt út í búð að kaupa skjalaskipulagsmöppur og bar þær heim. í þann mund sem ég stíg inn um dyrnar ígerast hóstsperrurnar svona hrikalega að ég er komin með krampa í bakið handan hægra herðablaðs. ég svona ætla að hrista þetta af mér og byrja að skipuleggja pappírana sem legið hafa í vídeótækispappakassa í hátt í ár...krampinn í bakinu verður bara verri og verri og á endanum er ég bara gjörsamlega óhreyfanleg án töluverðs sársauka. ég átti meira að segja erfitt með að anda og allra verst var að hósta. skipulagssessjónin fór út um þúfur og ég endaði í rúminu í hóstbindindi. svekk.
ég er orðin miklu betri núna og er að íhuga að takast á við pappírsbunkann aftur í dag.
byrjaði reyndar daginn á því að horfa á easy rider í sjónvarpinu. mér finnst hippar svalir. þeir segja bara "far out, man" og brosa. mig vantar smá af því attitúdi...bara slaaaaaaaaaaaka á og sjá lífið í bleikrauðum soft focus. mann langar bara í kandífloss af því að hugsa um það.
"stína hippi" hvernig hljómar það? pabbi er nú ennþá með skegg og sítt að aftan á góðum degi. mamma vill hafa hlutina natúral og helst ræktaða í garðinum...er það ekki dáldið hippa eitthvað? þau eru nú af '68 kynslóðinni... ég hlýt að hafa þetta í mér. :-)
peace man!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home