ég eyddi öllum gærdeginum í inntökupróf og æfingu fyrir west side story. sá auglýsingu í blaðinu um daginn að það yrðu inntökupróf fyrir "a chorus line" sem er söngleikur sem fjallar um dansara og ég ákvað bara að skella mér í gær...var svona á báðum áttum. tommi sagði mér bara að drífa mig og ég hlýddi bara...hehehe. mætti þarna um tólf og beið ásamt slatta af fólki eftir því að þurfa að gera eitthvað fyrir framan þrjár alvörugefnar manneskjur. fólkið sem var að bíða var annaðhvort ofboðslega kvenlegir karlmenn eða dansaragellur að gera splitt og spíköt eins og þær ættu lífið að leysa. mér leist ekkert ofsalega vel á þetta...fannst ég vera hálfútundan og örugglega elst ef eitthvað væri! allavega...inn kemur kóreógrafinn sem er stelpa á mínum aldri og segir okkur að nú skuli dansað. hún er ekkert að draga þetta og kennir okkur rútínu 1, 2 og 3. hröð rútína við hraða tónlist úff...ég næ að læra þetta og einhvern veginn fer heilinn og líkaminn að því að komast í gegnum þetta...meira að segja þegar þrír og þrír áttu að dansa fyrir dómarana. gekk bara vonum framar. og viti menn...ég fékk call-back. þá byrjaði seinni hluti inntökuprófsins og þeir sem höfðu verið í prófi yfir vikuna og fengið call-back mættu líka. býst við að þetta hafi verið um fjörtíu manns eða svo, kannski aðeins minna. nú áttum við að læra lagið "what i did for love" úr söngleiknum, fengum nótur og svona 10 mín til að læra lagið. ég hafði heyrt þetta lag svona tvisvar áður en kann að lesa nótur þannig að ég var bara ágætlega stödd. hópnum var skipt niður í fjögurra manna einingar og svo var maður kallaður inn með sinni einingu. fyrst sungu allir fjórir saman og svo einn og einn. mér gekk bara fínt í þessu, thank god. eníveis...nú þurftum við að dansa aftur! ég var nú nógu þreytt eftir fyrri dansumferðina og þeir sem höfðu tekið prófið í byrjun vikunnar voru náttúrulega búnir að æfa sig heima...gekk ágætlega þrátt fyrir þreytu, held að ég hafi tekið þetta á adrenalíninu. á meðan á þessu stóð var alltaf verið að tína fólk úr og senda það heim...og maður veit ekkert hvort það var þá búið að fá hlutverk eða ekki. ég var þarna allavega ennþá. þá var komið að því að lesa yfir samtal sem við fengum og allir sem eftir voru fengu að stilla sér upp í röð eins og í söngleiknum og lesa eina línu c.a. ég fékk ekkert æðislegt hlutverk en komst allt í lagi frá því held ég. veit annars ekkert um það. svo voru fleiri sendir heim og eftir voru um 20 manns. allir fengu eintal til að lesa yfir...sumir eitt, sumir tvö...ég fékk að lesa yfir hlutverk "val" og "maggie". svo voru hlutverkin kölluð inn og ég held að við höfum verið svona sex sem lásum yfir fyrir "val" og mér fannst ég ekkert komast sérstaklega vel útúr því. gekk betur með "maggie" hjá mér. við þurftum að syngja aftur einhvers staðar þarna inn í og gekk það bara ágætlega. þegar öllu þessu var lokið var klukkan orðin rúmlega sex!!! ég var sumsé í inntökuprófi í sex klukkutíma!!! ég náði að fara að fá mér hálfan subway og svo í lestina á æfingu fyrir west side story. úff. og í dag er ég að drepast í líkamanum.
ég fæ líklega að vita í dag hvort ég fékk eitthvað hlutverk eða ekki. ég er eiginlega frekar á því að ég komist ekki inn...gekk ekkert svakalega vel í leiklistarhlutanum. ojæja. ég er allavega ánægð með að hafa fengið call-back og verið svona lengi. hlýt að hafa gert eitthvað rétt. :-)

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home