Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, febrúar 11, 2003

smá tilbreyting. vil ekki vera eins og allir hinir.

ég er ennþá að drepast í lærinu eftir keiluna. og ég er með harðsperrur í hægri höndinni...eins gott að ég vann tomma!

ég er alveg sammála björgu í dag...hverjum finnst kakósúpa góð??? ég hef heldur aldrei skilið þetta. eins og þykkt kakó sem maður borðar með skeið og mylur tvíbökur útí. hljómar allt í lagi kannski en það er þessi skán sem gerir þetta svo ósmekklegt eitthvað. ég man þegar ég var að vinna í bifreiðaskoðun sem unglingur og oft á föstudögum var framreidd kakósúpa. það virtist vera heitara en heitar lummur því fólkið flykkjaðist í mötuneytið og sötraði súpuna sem aldrei fyrr. ég stóð bara utangátta og horfði á. aldrei hafði ég fengið kakósúpu á mínu heimili. mamma eldar bara gúrmeimat á sænska vísu. ég hef því ekki alist upp við kakósúpu, bjúgu, saltkjöt og slátur. mun frekar nyponsoppa, korv, köttfärslimpa og blodpudding.

ég ráðlegg fólki að horfa ekki á fræðsluþátt um sníkjudýr sem lifa á mannslíkamanum. ég horfði á þennan viðbjóð á discovery channel í gær. þvílíkt magn sem til er af alls kyns ormum og viðbjóði sem tekur mannskepnuna sér til hýsingar. ég er ekki söm eftir þennan þátt.